Við mamma erum búnar að komast að því að Skotar eiga erfitt með að borða matinn sinn sitjandi heldur hlaupa þeir með matarbakkana sína og fá sér bita í leiðinni á áfangastað. Ég og mamma urðum alveg hlessa þegar við sátum í okkar sætum á veitingarstað og horfðum á fólk með bakkana sína. Maður sér alveg fólk heima með samlokur og þannig á ferðinni en ekki heilu matarbakkana með hrísgrjónunum og kartöflunum!
Í dag eftir langann verslunarleiðangur settumust við inná mjög kósí stað ekki langt frá hótelinu okkar og fengum okkur kjúklingabringur með beikoni, osti og bbq sósu með frönskum og baunum, namm geggjað og við borðuðum ekki nema 3,95 pund fyrir diskinn, vorum bara ánægðar með það. Löbbuðum svo upp á hótel og dáðumst að því sem við vorum búnar að kaupa, og þá sérstaklega að fötunum sem mamma keypti, mjög smart föt J
Þegar við löbbuðum um stræti borgarinnar í kvöld sáum við varla stelpur í kápum heldur voru þær allar í þvílíkt stuttum pilsum og hlírabolum í pinnahælunum og engum yfirhöfnum ! Er það í lagi ?? Er það ekki óeðlilegt þegar það er alveg þokkalega kalt úti eða er ég bara orðin svona gömul og man ekki hvernig ég klæddi mig þegar ég var ung og fór á djammið?
Jæja stutt færsla í dag
Kveð í bili
Svava
Sögðuð þið ekki bara kallinum að fara í bað?! ;)
ReplyDeleteGaman að heyra frá þér Svava!!! heyrumst svo fljótt á skypinu :) knús og kram over to you
kv.Valgerður bæ ðö vei
Þegar þú varst ung og fórst á djammið? hahahaha! Greyið orðin svo gömul og löngu hætt að djamma..
ReplyDelete:)
Love you.
Gaman að lesa bloggið þitt svava mín:)
ReplyDeleteEn þetta er mjög óeðlilegt að fara svona út á djammið en ekkert að því á enskum mælikvarða...þær eru allar svona. Í allt of stuttum pilsum og berleggjaðar, get used to it ;)
Verðum að taka skype einhverntímann!
knús í klessu
kv, Fanney frænka:)